Leiðtogar Hamas samþykktu síðdegis skilyrði fyrir vopnahléi á Gaza en ísraelsk stjórnvöld gefa ekkert slíkt til kynna. Innrás vofir enn yfir Rafah.
Það er vanvirðing við kjósendur hvernig tekið er á fölsuðum undirskriftum í kosningum, segir fyrrverandi þingmaður sem lenti á framboðslista gegn vilja sínum.
Gæsluvarðhald yfir manni sem er grunaður um að hafa banað konu sinni á Akureyri hefur verið framlengt um fjórar vikur.
Dómsmálaráðherra telur sjálfsagt að rannsaka ákvörðun fyrrverandi ríkislögreglustjóra um að bæta lífeyrisréttindi nokkurra undirmanna en rannsókn sé ekki í höndum ráðherra.