Fylgið á fleygiferð hjá forsetaframbjóðendum og lög sem skerða málfrelsi
Fylgið hjá forsetaframbjóðendunum er enn á mikilli hreyfingu, segir stjórnmálafræðingur. Dagamunur getur verið á því hvaða frambjóðanda fólk hyggst kjósa.
Kappræður með öllum frambjóðendunum tólf verða í sjónvarpinu í kvöld og í fyrsta skipti verður notast við talgreini til að texta útsendinguna.
Kosið verður til sveitastjórnar í sameinuðu sveitarfélagi Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar á morgun. Kjósendur geta valið á milli tveggja lista
Íslenskur háskólaprófessor í Bandaríkjunum segir að lög sem samin voru og samþykkt í fulltrúadeild Bandaríkjaþings til að bregðast við mótmælum háskólastúdenta skerði bæði málfrelsi hans og akademískt frelsi. Fyrrverandi ráðgjafi í innsta hring Donalds Trumps bar í dag vitni gegn forsetanum fyrrverandi.