Fylgi Vinstri grænna hefur aldrei mælst minna en í nýjum þjóðarpúlsi og áfram dregur úr stuðningi við ríkisstjórnina.
Rétt væri að endurskoða áform um að gefa laxeldisfyrirtækjum ótímabundið rekstrarleyfi segir formaður VG.
Eldfjallafræðingur telur stutt í nýtt kvikuhlaup á Reykjanesskaga, þar sem hægt hefur á landrisi líkt og gerðist í aðdraganda fyrri atburða.
Ísrael og Hamas funda um tímabundið vopnahlé. Ef samningar takast geta Palestínumenn snúið aftur til norðurhluta Gaza.
Fjölmargir hafa beðið í meira en ár eftir augasteinsaðgerðum. Nærri fimm þúsund eru á biðlista og hefur fjölgað mjög.
Öryggisleit á Keflavíkurflugvelli gæti lagst af fjóra morgna í maí ef flugvallarstarfsmenn samþykkja verkfallsaðgerðir - þriðju aðgerðirnar sem boðaðar eru þar á hálfu ári.