Aðeins munaði tíu metrum að rúmlega 140 þúsund tonna skemmtiferðaskip, með um fjögur þúsund og sex hundruð manns um borð, strandaði á grynningum við Viðey í fyrra. Hafnsögubátur var í hættu þegar keyra þurfti í síðu skipsins til að hnika því til., segir Jón Pétursson, rnnsóknarstjóri siglingasviðs hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa.
Tap íslensku flugfélaganna jókst milli ára þrátt fyrir mettekjur.
Þingmaðurinn Guðmundur Ingi Kristinsson, sem þekkir núverandi öryrkjakerfi af eigin raun segir að gera þurfi gagngerar betrumbætur á frumvarpi um breytingar á kerfinu áður en það verði að lögum.
Listeríusýkingum hefur fjölgað hér á landi en það sem af er ári hafa sex smit verið greind - tvöfalt á við allt árið í fyrra, segir Anna Margrét Halldórsdóttir, yfirlæknir hjá landlæknisembættinu..
Og veturinn sem nú kveður senn var sá kaldasti á landinu í aldarfjórðung. Ólíklegt er að sumar og vetur frjósi saman í nótt, nema þá helst inn til landsins norðantil segir Eiríkur Örn Jóhannson veðurfræðingur.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson og Andri Yrkill Valsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir