Bankaráði skipt út og fyrsti þjóðarpúls Gallup um forsetakosningarnar
Öllu bankaráði Landsbankans verður skipt út vegna kaupa bankans á TM. Bankasýsla ríkisins telur bankann hafa gengið gegn vilja fjármálaráðherra með tilboði sínu í tryggingafélagið. Ekki er tölfræðilega marktækur munur á fylgi Katrínar Jakobsdóttur og Baldurs Þórhallssonar samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup. Katrín sækir fylgi sitt að stórum hluta til kjósenda stjórnarflokkanna.
Formaður Veiðifélags Þjórsár hefur miklar áhyggjur af framtíð laxastofnsins í Þjórsá, verði áætlanir um Hvammsvirkjun að veruleika. Hann segir það vonbrigði, en þó ekki koma á óvart, að Umhverfisstofnun hafi heimilað breytingar á ánni. Sveitarstjórnir Snæfellsbæjar og Grundarfjarðar hafa fundað með Heilbrigðisstofnun Vesturlands um leiðir til að efla heilbrigðisþjónustu. Til stendur að efla síma- og fjarþjónustu og semja við ákveðinn hóp lækna í verktöku til að tryggja samfellda læknisþjónustu.