11. apríl 2024
Heilbrigðisráðherra ætlar að endurskoða vottorðagerð heilsugæslunnar til að að minnka álag og einfalda regluverkið. Hann á von á tillögum á allra næstu dögum.
Taka þarf mjög marga þætti með í reikninginn þegar áhrif skógræktar eru metin, segir loftslagsfræðingur, ekki dugi að bera saman ólík fyrirbrigði eins og staðbundna hlýnun og losun gróðurhúsalofttegunda.
Seyðisfjörður getur í fyrsta sinn verið sjálfum sér nógur um rafmagn og hætta á rafmagnsleysi hefur minnkað til muna. Tvær virkjanir hafa lengi verið til staðar í firðinum en hafa fyrst nú verið beintengdar þorpinu.
Foreldrar leikskólabarna í hverfum í Reykjavík þar sem flytja á börnin yfir á frístund í vor eru ekki sáttir.
Umboðsmaður Alþingis telur að sekt við stöðubroti inni á einkalóð hafi átt rétt á sér þrátt fyrir rangar forsendur Bílastæðasjóðs. Eigandi lóðarinnar málaði yfir almenningsstæði til að halda innkeyrslunni opinni.