Stjórnarmyndunarviðræður, Katrín Jakbsdóttir nýtur mestrar hylli í skoðanakönnun og átök um þungunarrof í Bandaríkjunum
8. apríl 2024
Forystumenn stjórnarflokkanna hafa setið við á fundum í dag en ekki hefur enn náðst saman um endurnýjun stjórnarsamstarfsins með breyttri ráðherraskipan.
Katrín Jakobsdóttir mælist með um þriðjung atkvæða samkvæmt nýrri skoðanakönnun á fylgi þeirra sem hafa boðað forsetaframboð. Baldur Þórhallsson og Jón Gnarr koma næstir.
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, ætlar ekki að styðja bann við þungunarrofi á landsvísu. Joe Biden forseti segir Trump á flótta undan eigin gerðum og ætlar að setja málið á oddinn í komandi kosningum.
Vestmannaeyjabær gagnrýnir hve hægt gengur að dýpka Landeyjahöfn. Vegagerðin segir að ekki hafi gengið nógu vel. Samningur við verktaka verði endurskoðaður og mögulega sagt upp.