Fundað vegna forsetaframboðs, ný Gallup-könnun og varaflugvöllur í Borgarfirði
Óvissa er í ríkisstjórnarsamstarfinu vegna mögulegs forsetaframboðs Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra. Formenn hinna flokkanna segja eðlilegast að ræða hvort grundvöllur yrði fyrir áframhaldandi samstarfi þeirra. Samfylkingin mælist með sitt mesta fylgi í fimmtán ár. Vinstri græn fengju þrjú þingsæti samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup eftir að hafa mælst utan þings í þeim síðasta. Íbúar á Gaza óttast að framboð matvælaðstoðar verði minna eftir að Ísraelsher drap hjálparstarfsfólk í gær. Þrýstingur eykst á svör frá ísraelskum stjórnvöldum. Skipulagsfræðingur vill að nýr varaflugvöllur verði norðan Hvalfjarðar eða í Borgarfirði, en ekki í Hvassahrauni. Hann segir rétt að byggð sé skipulögð með náttúruvá í huga.