ASÍ vill að mansalsfórnarlömb fái að vera, orðrómur um framboð Katrínar, kaflaskil í köldu stríði
ASÍ þrýstir á stjórnvöld að tryggja þolendum í stóra mansalsmálinu varanlega dvöl á landinu. Hver óvissudagur bitni á sálarlífi fólksins.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokks fundar á morgun vegna orðróms um að forsætisráðherra hyggi á forsetaframboð.
Formaður björgunarsveitarinnar á Dalvík segir álag vegna fjallafólks orðið galið á svæðinu. Allar bjargir voru ræstar út í dag þegar tilkynnt var að vélsleðamenn hefðu lent í snjóflóði.
Kaflaskil gætu orðið í köldu stríði Ísraels og Írans eftir árás Ísraelshers á ræðismannaskrifstofu Írans í Sýrlandi í gær. Prófessor í nútímasögu Mið-Austurlanda segir hættu á fleiri lönd dragist inn í ófriðinn.
Ekkert landris hefur mælst við Svartsengi síðustu daga og kvika er talin flæða beint upp á yfirborðið. Viðvarandi hætta á gróðureldum er við gosstöðvar á meðan þurrt er í veðri.