Um 350 manns hafa afplánað fangelsisdóma með samfélagsþjónustu eftir að reglur voru rýmkaðar fyrir þremur árum. Formaður Afstöðu, félags fanga, segir þetta úrræði hafa bjargað mannslífum.
Alþjóðadómstóllinn krefst þess að Ísrael tryggi án tafar mannúðaraðstoð á Gaza vegna hungursneyðar.
Félag Íslenskra bifreiðaeigenda gagnrýnir regluleysi þegar kemur að bílastæðigjöldum. Eftirlit sé lítið og dýrara að leggja á Hverfisgötu í Reykjavík en fyrir framan Buckingham-höll Bretakonungs.
Bandarískur viðskiptajöfur, sem eitt sinn var kallaður Rafmyntakóngurinn, var í dag dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir fjársvik í einu umfangsmesta máli sinnar tegundar í bandarískri réttarsögu.
Ný rannsókn bendir til þess að loftslagsbreytingar, þá sérstaklega bráðnun jökla og íshellna, hafi áhrif á snúning jarðarinnar. Eina sekúndu gæti þurft að taka af tímanum eftir fimm ár.