Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna krefst þess að vopnahlé komist á á Gaza. Varnarmálaráðherra Ísraels segir að stríðinu ljúki ekki fyrr en öllum gíslum hefur verið sleppt.
Eina leiðin til að koma hjálpargögnum til Gaza er að varpa þeim úr flugvél. Það er hættulegt og erfitt að tryggja að gögn skili sér til þeirra sem þar svelta. Fréttaritari RÚV fór í slíkt hjálparflug. Sameinuðu þjóðirnar segja óskiljanlegt að Ísrael standi í vegi fyrir því að neyðaraðstoð berist landleiðina til Norður-Gaza.
Formaður utanríkismálanefndar segir Ísland vera að bregðast við ákalli Úkraínumanna með stuðningi sínum við innkaup Tékklands á skotfærum fyrir Úkraínu.
Búið er að loka nokkrum íbúðargötum í Grindavík meðan verið er að kanna hættur sem kunna að leynast þar undir yfirborðinu.
Hægt gengur að undirbúa nýja háspennulínu frá Blönduvirkjun til Akureyrar. Línan fer um tæplega níutíu jarðir og vðræður við landeigendur hafa reynst tímafrekar. Landsnet segir þó heldur að birta til við undirbúninginn.