Hraun yfir varnargarða, lengra gos og kjötafurðarstöðvar fá undanþágu
Eldgosið sem hófst á Sundhnúksgígaröðinni á laugardagskvöld er stöðugt og grannt er fylgst með hvort hraun fari brátt að renna yfir varnargarðana sem verja Grindavík.
Kjötafurðastöðvar fá undanþágu frá samkeppnislögum samkvæmt frumvarpi sem Alþingi í samþykkti í dag. Alþýðusambandið telur lagabreytinguna grafa undan hagsmunum almennings. Foreldrar á Raufarhöfn fagna ráðningu nýs skólastjóra og að þurfa ekki að senda börnin langa leið með skólabíl á degi hverjum. Félags- og vinnumarkaðsráðherra leggur til umbyltingu á örorkulífeyriskerfinu í nýju frumvarpi sem lagt var fyrir Alþingi í dag.