Vísbendingar eru um að kvika flæði óhindrað úr kvikuhólfinu undir Svartsengi inn kvikuganginn og upp um gosop við Sundhnúksgíga. Þannig getur eldgosið náð jafnvægi og haldið lengi áfram, segir Elísabet Pálmadóttir náttúruvársérfræðingur..
Ásrún Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Grindavík, segir verða kostnaðarsamt að gera við sprungur og holrými í jarðveginum undir bænum. Skýra þurfi verkaskiptingu milli sveitarfélagsins og stjórnvalda.
Áhrif kjarasamninga eru ekki komin fram og ótímabært að lækka vexti, segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Stýrivextir verða óbreyttir, níu komma tuttugu og fimm prósent.
Stjórnarandstaðan sakaði Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur fjármálaráðherra um að hafa sofið á verðinum þegar Landsbankinn keypti tryggingafélagið TM. Ráðherra flutti þinginu munnlega skýrslu um málið í dag.
Talskona rússneska utanríkisráðuneytisins gagnrýnir Ísland vegna þátttöku þess í stríðinu í Úkraínu.
Alríkisdómstóll hefur frestað gildistöku laga sem heimila yfirvöldum í Texas að handtaka ólöglega innflytjendur. Hæstiréttur Bandaríkjanna hafði nokkrum klukkustundum áður heimilað gildistökuna meðan lögmæti laganna væri kannað.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson og Alexander Kristjánsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir