Nærri 350 Grindvíkingar hafa sóst eftir að selja ríkinu húsnæði sitt. Húsnæðisþörfin er mikil og dæmi eru um nágrannaslagi á opnum húsum, segir Dagbjartur Willardsson fasteignasali og Grindvíkingur.
Forsætisráðherra Ísraels tilkynnti í dag að áætlun um innrás í borgina Rafah hefði verið samþykkt. Á aðra milljón Palestínumanna hefur leitað þar skjóls. Ragnar Jón Hrólfsson tók saman.
Veðurstofan segir engin skýr merki um að jarðhræringunum á Reykjanesskaga og við Grindavík ljúki á næstunni. Fyrirliggjandi gögn bendi ekki til að streymi kviku undir Svartsengi hafi minnkað verulega á milli síðustu atburða. Ásta Hlín Magnúsdóttir talaði við Salóme Jórunni Bernharðsdóttur, náttúruvársérfræðing hjá Veðurstofunni.
Stefnt er að því að gera breytingar á rekstri Múlalundar á þessu ári. Fundin verða störf á almennum vinnumarkaði fyrir starfsfólk þar með skerta starfsgetu. Þetta er stefna stjórnvalda í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Haukur Holm sagði frá.
Þegar eru fleiri að safna meðmælum með framboði fyrir forsetakosningarnar í sumar en nemur fjölda þeirra sem buðu sig fram fyrir átta árum. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman.
Heimir Már Pétursson fréttamaður á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni fékk Blaðamannaverðlaun ársins fyrir umfjöllun sína um kjaramál á árinu.
Åge Hareide, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, tilkynnti í dag hvaða leikmenn verða í hópnum sem mætir Ísrael í umspili Evrópumótsins og leikur síðan við annað hvort Bosníu eða Úkraínu. Albert Guðmundsson var valinn í landsliðið, en ekki tveir fornir máttarstóppar, Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson.