Dómur í hryðjuverkamáli, verkbann og gæsluvarðhald í mansalsmáli framlengt
Sakborningar voru sýknaðir í héraðsdómi Reykjavíkur í dag af tilraun til hryðjuverks og hlutdeild í þeirra tilraun en dæmdir fyrir stórfelld vopnalagabrot.
Atkvæðagreiðsla Samtaka atvinnulífsins um verkbann á skrifstofumenn í VR kemur formanni VR verulega á óvart. Ofsafengið viðbragð segir hann en framkvæmdastjóri SA segir þetta varnaraðgerð.
ÞG Verktakar áttu eina tilboðið sem barst í gerð nýrrar Ölfusárbrúar
Dómsmálaráðherra segir að ekki megi senda þá sem hafa hlotið alþjóðlega vernd hér á landi aftur til síns heimalands, þrátt fyrir ítrekuð lögbrot.
Próftakar sem tala ekki íslensku og þreyta próf hjá ökuskólanum í Mjódd til að fá réttindi til að aka leigubíl mega vera með síma í prófunum. Skólastjóri segir þetta vera samkvæmt fyrirmælum samgöngustofu en samgöngustofa segir það ekki rétt.