Fleiri ábendingar um mansal, tólf samtök saka Ísrael um að fara gegn úrskurði, Hera fer í Eurovision
Ábendingar um mögulegt mansal og illa meðferð á starfsfólki hafa hrannast inn á borð stéttarfélaga undanfarna viku. Formaður Matvís segir brýnt að stofna mansalsteymi.
Tólf ísraelsk mannúðarsamtök saka yfirvöld um að fara ekki að úrskurði Alþjóðadómstólsins um að tryggja mannúðaraðstoð á Gaza.
RÚV hefur ákveðið að taka þátt í Eurovision í maí. Hera keppir í Malmö með lagið Scared of Heights.
Landsvirkjun kannar tvö ný svæði undir vindorkuver, til viðbótar við Búrfellslund og Blöndulund. Vindrannsóknir eru að hefjast við Húsavíkurfjall og á Fljótsdalsheiði.