Starfsgreinasambandið, Efling og Samiðn skrifuðu í dag undir kjarasamning við Samtök atvinnulífsins. Samningurinn gildir til fjögurra ára. Lágmarkslaunahækkun er tæplega 24 þúsund krónur. Framkvæmdastjóri SA segir þetta tímamótasamning. Formaður Starfsgreinasambandsins er á sama máli og er sannfærður um að samningurinn verði samþykktur.
Kaupsýslumaðurinn Quang Lé, einnig þekktur sem Davíð Viðarsson, var yfirheyrður í dag vegna gruns um peningaþvætti, mansal og skipulagða glæpastarfsemi.
Öryggi æðstu ráðamanna þjóðarinnar er mun frekar ógnað núna en áður og heift í hótunum er meiri segir ríkislögreglustjóri. Reynt var að veitast að utanríkisráðherra á opnum fundi í Háskóla Íslands í hádeginu.
80 gráðu heitt vatn fannst á Selfossi og vonast er til að magnið sé nægt til að virkja megi holuna.
Fyrsti loðnufarmur ársins kom að landi á Eskifirði í gærkvöld. Loðnan kemur úr Barentshafi en ekki hefur enn fundist næg loðna við Ísland til að gefa út kvóta.
Læknar í Alabama sem nota frosna fósturvísa við tæknifrjóvgun verða undanþegnir lagalegri ábyrgð ef fósturvísirinn verður ekki að barni. Dómstólar í ríkinu úrskurðuðu í síðasta mánuði að fósturvísar væru börn.
Umsjón: Andri Yrkill Valsson og Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir