Uppþot á Alþingi, Trum kjörgengur og úrslit Söngvakeppninnar standa
Uppþot varð á Alþingi þegar dómsmálaráðherra hóf að mæla fyrir breytingum á útlendingalögum, einn mótmælandi var handtekinn. Forseti þingsins segir öryggismál sífellt endurmetin.
Colorado-ríki mátti ekki banna Donald Trump að bjóða sig fram í forvali repúblikana. Þetta er einróma niðurstaða Hæstaréttar Bandaríkjanna.
Skaðlegt inniloft snýst um meira en myglu, Læknir segir tækifæri hérlendis til að hafa forystu í rannsóknum á skaðsemi mengandi efna í innilofti sem hafa áhrif á heilsu.
Krafa í nýju lagafrumvarpi um að grunaðir sakamenn verði að staðfesta móttöku ákæru í rafrænni birtingu veldur lögreglustjórum ugg.
Mistök urðu við framkvæmd sms-kosningar í lokaeinvígi Söngvakeppninnar en úrslit hennar standa. Einn aðstandaanda lagsins sem varð í öðru sæti vill að kosið verði aftur og segir að innanhúsrannsókn RÚV og aðstadenda símakosningarinnar sé ófullnægjandi.