Grindavík, rannsóknarnefnd Almannavarna, útlendingalög og Navalní
Fiskvinnsla hófst aftur í Einhamri í Grindavík í dag eftir langt hlé. Starfsmaður segist himinlifandi með að færiböndin séu farin að rúlla á ný.
Þingmenn allra flokka nema Miðflokksins leggja til að rannsóknarnefnd almannavarna verði endurreist. Í greinargerð segir að hlutverk og ábyrgð almannavarna hafi orðið æ veigameira síðustu ár
Formaður Viðreisnar hvatti til samstöðu um málefni hælisleitenda á Alþingi í dag og varar við að málið verði gert að pólitísku bitbeini fyrir næstu kosningar.
Meirihluti svarenda í skoðanakönnun í Ísrael telur ólíklegt að fullnaðarsigur vinnist í stríðinu á Gaza. Framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar kallar eftir vopnahléi