Mikill eldur kom upp í dekkjaverkstæði í Fellsmúla í Reykjavík fyrir stuttu og voru allir tiltækir slökkviliðsbílar kallaðir út. Rætt við Benedikt Sigurðsson fréttamann á vettvangi.
Leit vegna hvarfs Jóns Þrastar Jónssonar í Dyflinni í dag bar ekki árangur. Írska lögreglan hefur leitað í almenningsgarði síðustu daga eftir að því var haldið fram í bréfi að líki hans hefði verið komið fyrir í garðinum.
Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur hafið rannsókn á eiturefnaleka hjá endurvinnslu bæjarins í dag. Starfsfólk leitaði læknis vegna óþæginda í augum og öndunarvegi. Ólöf Rún Erlendsdóttir ræðir við Ásgeir Má Hauksson, verkstjóra í Endurvinnslunni.
Eftir mikla vinnu við að koma kerfum HR í lag eftir tölvuárás er kennsla aftur með hefðbundnum hætti. Hreinsa þurfti 500 tölvur eftir árásina. Rætt við Ragnhildi Helgadóttur rektor.
Bæjarstjórn Grindavíkur segir að frumvarp um uppkaup megi ekki leiða til þess að bærinn verði gefinn upp á bátinn, heldur þurfi að vera hvati til að snúa aftur heim í Grindavík.
Rúmar 45 milljónir króna hafa safnast fyrir Grindvíkinga. Þetta er stærsta sjálfstæða söfnun Rauða krossins til þessa. Óvíst er hvenær henni lýkur, segir Oddur Freyr Þorsteinsson.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir