Vonar að greiðslur til UNRWA hefjist aftur og Grindvíkingum leyft að sækja eigur sínar
5. febrúar 2024
Forsætisráðherra vonar að greiðslur til Palestínuflóttamannaaðstoðarinnar hefjist á ný; Sameinuðu þjóðirnar hafi brugðist hratt við ásökunum á hendur starfsmönnum hennar.
Eigandi fiskvinnslufyrirtækis í Grindavík hefur stefnt íslenska ríkinu vegna banns ríkislögreglustjóra á viðveru og starfsemi í Grindavík. Þúsund Grindvíkingum var leyft að fara inn í bæinn í dag.
Þörf á nýrri deild fyrir ósakhæfa fanga og alvarlega geðsjúka er svo mikil að hún myndi fyllast á fyrsta degi, segir yfirlæknir.
Allir frá átján mánaða til 53 ára, sem ekki hafa verið bólusettir fyrir mislingum, eru hvattir til að fá bólusetningu vegna mislingasmits sem greindist fyrir helgi.