Rannsókn lögreglu á andláti sex ára drengs í Kópavogi beinist að því að honum hafi verið ráðinn bani, segir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn. Móðirin liggur undir grun.
Starfsmenn héraðssaksóknara sem vinna að rannsókn Samherjamálsins tóku þátt í yfirheyrslum á vitnum í Namibíu.
Fundi samninganefnda SA og félaga innan ASÍ hjá Ríkissáttasemjara lauk á sjötta tímanum. Boðað er til annars fundar á morgun.
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segist hissa á ummælum framkvæmdastjóra Staðlaráðs í Kastljósi í gær. Staðlaráð varar við því að fljótlega verði leyfilegt að byggja hús sem séu ekki nógu örugg fyrir íslenskar aðstæður.
Rúmlega átta hundruð embættismenn í Bandaríkjunum og Evrópu telja að stuðningur ríkisstjórna á Vesturlöndum við Ísrael geti varðað við alþjóðalög og að þau teljist samsek í einni verstu mannúðarkrísu þessarar aldar.
Sameinuðu þjóðirnar áætla að minnst sautján þúsund börn á Gaza séu fylgdarlaus eða hafi orðið viðskila við fjölskyldur sínar á síðustu fjórum mánuðum.
Tveir breskir táningar voru í dag dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir morð á transstúlku í febrúar í fyrra.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir