Alvarleg brunasár á Gaza, viðbrögð við drónaárás ákveðin, stafrænt kynferðisofbeldi með djúpfölsun
Fjölmargir þeirra sem leita á sjúkrahús í Rafah missa útlim, segir Elín Oddsdóttir skurðhjúkrunarfræðingur sem er nýkomin frá Gaza.
Hún segir alvarleg brunasár algeng, jafnvel um allan líkamann.
Bandaríkjaforseti segir að viðbrögð við drónaárás á bandaríska hermenn í Jórdaníu hafi verið ákveðin. Mikil pressa er á forsetann heima fyrir að bregðast við árásinni.
Fjármálaráðherra segir að ný verðbólgumæling sýni að hægt sé að draga úr verðbólgu með samstilltum aðgerðum. Kjaraviðræður og húsnæðisvandi Grindvíkinga gætu þó sett strik í reikninginn.
Full ástæða er til að hafa áhyggjur af stafrænum kynferðisbrotum með djúpfölsun, segir lögfræðingur hjá ríkislögreglustjóra.
Bæjarstjóri Kópavogs telur uppbyggingu í landi Gunnarshólma nauðsynlega til að bregðast við fjölgun aldraðra.