Grindavík, Svandís í veikindaleyfi, AfD boðar Dexit, loðnuskortur og jöfnunarsjóður
Forsætisráðherra flutti Alþingi munnlega skýrslu síðdegis þegar þing kom saman á ný um stöðu mála í Grindavík. Forsætisráðherra sagði þetta eitt stærsta verkefni lýðveldissögunnar. Mikil samstaða og einhugur með Grindavík og Grindvíkingum einkenndi umræðuna á Alþingi í dag.
Svandís Svavarsdóttir er farin í leyfi frá störfum sem matvælaráðherra vegna krabbameins. Vantrauststillaga sem lögð var fram gegn henni í morgun hefur verið dregin til baka.
Formaður þýska harðlínuflokksins Alternative für Deutschland vill boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um úrsögn Þýskalands úr Evrópusambandinu, að breskri fyrirmynd.
Engin loðna sást fyrir austan land í rannsóknaleiðangri fjögurra skipa.
Lækka gæti þurft framlög úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga um allt að 5,5 milljarða á næstu árum vegna niðurstöðu héraðsdóms í máli Reykjavíkurborgar gegn íslenska ríkinu. Rætt við Heiðu Björg Hilmisdóttur, formann Sambands íslenskra sveitarfélaga.