Mannsins sem féll í sprungu í Grindavík í gærmorgun er enn leitað.
Ekki er búist við að jökulhlaupið í Grímsvötnum hafi áhrif á vegi eða brýr. Óvissustigi hefur verið lýst yfir vegna hlaupsins.
Í tvígang hefur fólk án heilbrigðismenntunar umskorið drengi hér á landi, samkvæmt ábendingum sem Landlæknisembættinu hafa borist.
Forseti Póllands ætlar að veita tveimur fyrrverandi þingmönnum sem voru handteknir í forsetahöllinni sakaruppgjöf. Hann segir þá vera pólitíska fanga.
Gullbergið kemur til Vestmannaeyja í fyrramálið með um sautján hundruð tonn af kolmunna.
Björk Guðmundsdóttir var í dag útnefnd áttundi heiðursborgari Reykjavíkur.
Kvöldfréttir útvarps