8 ár fyrir manndráp, 2023 heitasta árið, músagangur í sundlaug
Karlmaður á fertugsaldri var í dag dæmdur í átta ára fangelsisvist fyrir manndráp á Ólafsfirði.
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að leggja þurfi deilur í ríkisstjórn til hliðar til að tryggja að ríkið komi að yfirstandandi kjaraviðræðum. Efnahagslegur stöðugleiki á Íslandi sé undir.
Árið 2023 var það heitasta frá því að mælingar hófust og á barmi einnar og hálfrar gráðu þröskuldsins.
Stjórnendur Háskólans á Akureyri og á Bifröst segja sameiningu háskólanna geta stóreflt byggðir landsins og rannsóknir.
Fáskrúðsfirðingar eru óánægðir með ástandið á sundlauginni í bænum og óttast að henni verði lokað. Formaður bæjarráðs segir að engar ákvarðanir hafi verið teknar um framtíð laugarinnar.
Samdráttur í kortaveltu á degi einhleypra nemur tugum prósentustiga á undanförnum árum - en vinsældir svarts föstudags og rafræns mánudags aukast.