Meta garða við Grindavík, grænt í kauphöll, bjartsýnir landar
Almannvarnir eru hlynntar gerð varnargarða við Grindavík og meta nú útfærslur. Forsætisráðherra segir að gert sé ráð fyrir varnargörðum í nýlegum lögum og bíður tillagna almannavarna.
Grindvíkingum í húsnæðisvanda bjóðast tuttugu leiguíbúðir til viðbótar hjá leigufélaginu Bríeti.
Eftir heldur dapurt ár lengst af hefur verið rífandi gangur á hlutabréfamarkaði undanfarnar vikur.
Of skammur fyrirvari er á gistináttaskatti á skemmtiferðaskip. Þetta segir talsmaður hagsmunasamtaka leiðangursskipa á Norðurslóðum.
Borgarráð í lítilli þýskri borg hefur sett vopnaframleiðslu Evrópusambandsins í uppnám.
Rúmlega helmingur landsmanna telur að árið sem er að ganga í garð verði þeim farsælla en árið sem er að líða. Tíu prósent búast við að það verði verra.