Nýtt hættumat, sendiherraskipun, stríð og friður á Gaza
20. desember 2023
Gosið í Sundhnúksgígum er orðið mjög lítið og vinnu við varnargarða umhverfis Svartsengi er um það bil að ljúka.
Utanríkisráðherra skipaði sjálfur nefnd sem metur hæfi fyrrverandi pólitísks aðstoðarmanns hans sem hann hefur tilnefnt sem sendiherra í Bandaríkjunum.
Með ráðningunni virkjar ráðherrann í fyrsta skipti ákvæði í lögum um tímabundna skipun sendiherra
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna vonar að viðræður Hamas og Ísrael leiði til vopnahlés. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kýs um ályktun sína um vopnahlé í kvöld.
Fundur var haldinn um viðbrögð við skemmdum á neysluvatnslögn til Vestmannaeyja í gær. Enn er verið að gera við vatnsleiðsluna.
Reglur um gjafir fyrirtækja til starfsmanna sinna hafa ekki breyst svo árum skiptir, segir skattstjóri, og alveg skýrt að allar peningagjafir séu skattskyldar.