Loftslagsráðstefna, kjaraviðræður, raforkulög og lekandi
13. desember 2023
Ályktun loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um að ríki heims færi sig frá notkun jarðefnaeldsneytis er varnarsigur eftir bakslag í upphafi ráðstefnunnar, segir forsætisráðherra.
Það skýrist væntanlega eftir helgi hvort verkalýðshreyfingin gangi samhent til kjaraviðræðna á nýju ári. Fundað er um stöðuna og formaður Starfsgreinasambandsins er vongóður um að félög taki höndum saman.
Þriðjungur heimila landsins á í erfiðleikum með að ná endum saman.
Framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar segir að orkuframleiðslufyrirtækin eigi að afhenda raforku inn á almenna markaðinn í samræmi við það sem þau framleiða.
Grindvíkingar fá nú rýmri tíma til að huga að eigum sínum, en ekki er talið óhætt að leyfa íbúum að gista í bænum í desember.
Sjötíu prósent aukning er á tilfellum lekanda hér á landi á milli ára. Metfjöldi hefur greinst með kynsjúkdóminn á þessu ári eða 270 manns, og meirihlutinn karlar.