PISA, húsnæðisstuðningur, náðun til að stytta boðunarlista
Börn með lakari félagslegan bakgrunn koma verr út í niðurstöðum PISA-könnunarinnar, en önnur börn. Forstjóri Menntamálastofnunar segir að grípa verði til aðgerða strax.
Alþingi samþykkti í dag frumvarp innviðaráðherra um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Samfylkingin kynnti kjarapakka í dag - þar er lagt til álag á veiðigjöld stórútgerða og að afturkalla lækkun á bankaskatti.
Níu menn sem dæmir voru fyrir minniháttar brot voru náðaðir til þess eins að stytta boðunarlista í fangelsi. Þetta kemur fram í úttekt Ríkisendurskoðunar á Fangelsismálastofnun.
Í dag undirrituðu fulltrúar Mílu og Farice samning um afhendingu á útlandasambandi til Mílu á Akureyri. Notendur nettenginga á norðurhelmingi landsins fá þar með beina tengingu við sæstrengi til útlanda í stað þess að tengjast fyrst til Reykjavíkur eins og nú er.