Verkalýðsforysta um gjaldskrárhækkanir, virkjanaáform í Ölfusdal
30. nóvember 2023
Gjaldskrárhækkanir sveitarfélaga eru forystumönnum í verkalýðshreyfingunni áhyggjuefni. Formaður VR telur þær geta komið í veg fyrir samninga en forseti ASÍ tekur ekki svo djúpt í árinni.
Hvergerðingar eru hvumsa vegna yfirlýsinga Ölfuss um virkjanaáform í Ölfusdal. Bæjarstjóri Ölfuss segir að Hvergerðingum hafi verið tilkynnt um hugmyndirnar í mars.
Oddviti Pírata í Reykjavíkurborg telur að meira eftirlit þurfi með gististarfsemi hérlendis.
Hagvöxtur var aðeins 1,1 prósent á þriðja ársfjórðungi og hefur ekki mælst minni frá ársbyrjun 2021.
Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna óttast aukna útbreiðslu kynbundins ofbeldis í Súdan þar sem borgarastyrjöld geisar.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir