Líkamsárás á Litla-Hrauni, vandi bænda og forsetaheimsókn í Reykjavík
23. nóvember 2023
Fangi réðst á annan fanga með eggvopni á Litla-Hrauni í dag. Sá sem var stunginn var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi en hvorki lögregla né fangelsismálastjóri hafa upplýsingar um líðan hans.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segist taka ákall bænda vegna bráðavanda í greininni alvarlega en horfa verði til framtíðar og rýna í stöðu einstakra greina innan Bændasamtakanna. Síðari endurskoðun búvörusamninga er á lokastigi en þeir gilda út árið 2026.
Stjórn Gildis lífeyrissjóðs skoðar hvaða svigrúm gefst til að fella niður lánakostnað Grindvíkinga. Sjóðurinn býður þeim að frysta afborganir fasteignaláns í sex mánuði. Ströng lög um lífeyrissjóði takmarka svigrúm þeirra til að gefa eftir lánagreiðslur. Einar Hannes Harðarson formaður Sjómanna og vélstjórafélags Grindavíkur segir að lífeyrissjóðir verði að gera eins og bankarnir.
Borun á tólfhundruð metra djúpri vinnsluholu er að hefjast fyrir hitaveitu Blönduóss og Skagastrandar. Veitan annar ekki lengur eftirspurn eftir heitu vatni á veitusvæðinu.
?Framtíðin er flott og næsta kynslóð verður betri en þessi sem fær sér ís núna.? að sögn Guðna Th. Jóhannessonar, forseta íslands. Sjálfur gæddi hann sér á ís í hverfissjoppu í Árbænum í í opinberri heimsókn í höfuðborginni.
Markmið evrópsku nýtnivikunnar er að draga úr óþarfa neyslu og hvetja fólk til að nýta hluti betur.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir