Síðdegisútvarpið

Æðavarp í hægvarpi, stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og Matarhátíð í Vestmannaeyjum

Margir hafa gaman af því fylgjast með því sem er gerast í náttúrunni í beinu en þær gleðifréttir hafa borist streymi úr hinu merkilega æðarvarpi á Hrauni á Skaga er komið í gang líkt og í fyrra. Í ár eru myndavélarnar orðnar tvær og sjónarhornin því fleiri og við heyrðum í Herdísi Steinsdóttur, líffræðingi og æðarbónda, og spurðum hana út í æðavarpið og hægvarpið frá þessum merkilega stað.

Dr. Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur, skrifar opið bréf til formanns utanríkismálanefndar Alþingis, Pawel Bartoszek, á Vísi í dag. Þar bendir hann Pawel á spurningin í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst n.k. felur enn þá, eftir meðferð utanríkismálanefndar, í sér fullyrðingu. Það megi ekki vera fullyrðing í hreinum rannsóknarspurningum. Við spurðum Hauk nánar út í þetta og af hverju spurning í þjóðaratkvæðagreiðslu megi ekki fela í sér fullyrðingu og hver séu fræðin á bakvið slíkar spurningar.

Um næstu helgi fer fram sjávarréttahátíðin Matey í Vestmannaeyjum. Vestmannaeyjar hafa markað sér sess sem einn áhugaverðasti mataráfangastaður landsins og þar sem ferskasta hráefni landsins mætir skapandi matreiðslu í hæsta gæðaflokki, segir á síðunni vistivestmannaeyjar.is. Við fengum Sigurð Gíslason vert á veitingastaðnum Gott í Eyjum til segja okkur betur frá.

Klukkan hálf níu í fyrramálið mun Seðlabankinn kynna ákvörðun peningastefnunefndar varðandi stýrivexti sem munu gilda fram í ágúst. Við fengum Konráð Guðjónsson, hagfræðing, til spá í ákvörðunina og til lesa í stöðuna á hagkerfinu.

Leikhúslistakonur 50+ er hópur reyndra leikhúslistakvenna sem setur á svið leikrit og gjörninga fyrir almenning í Reykjavík og víðar. Í gær voru þær tilnefndar til hvatningarverðlauna Grímunnar og við fengum tvær þeirra í heimsókn þær Rósu Guðnýju Þórsdóttur og Eddu Þórarinsdóttur

Þá kom sjónvarpspekingurinn okkar, framleiðandinn Ragnar Eyþórsson, til okkar. Hann benti okkur á sjónvarpsseríur, nýjar sem gamlar, sem gott er hámhorfa í sumar.

Birt

19. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,