Síðdegisútvarpið

Staða gervigreindar á Íslandi, notkun farsíma undir stýri og Jazzþorpið í Garðabæ

Ísland stendur töluvert aftar en hinar Norðurlandaþjóðirnar hvað varðar stöðu og þroska ríkja í gervigreind. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu sem Almannarómur, miðstöð máltækni, gaf út í morgun. Skýrslan fjallar um stöðu gervigreindar á Íslandi og verður uppfærð ársfjórðungslega. Hann Óttar Kolbeinsson Proppé, yfirmaður stefnu, samhæfingar og alþjóðamála hjá miðstöðinni, kom til okkar, og sagði okkur frá skýrslunni.

Í síðustu viku ræddum við um málefni Grindavíkur og ræddum þá við Guðbjörgu Eyjólfsdóttur sem er formaður Járngerðar sem eru hollvinasamtök um uppbyggingu og framtíð Grindavíkur. Það var þungt í henni hljóðið en í viðtalinu kom fram Grindvíkingum finnist eins og ákvarðanataka fari fram án nægilegs skilnings á aðstæðum á staðnum og sérstaklega þegar kemur skólahaldi. Skarphéðinn Berg Steinarsson sem á sæti í Grindavíkurnefnd kom til okkar.

Lungnasamtökin, Astma-og ofnæmisfélag Íslands, Hjartaheill og SÍBS hafa myndað breiðfylkingu sem kallar eftir því aðgerðir til draga úr svifryksmengun verði settar á dagskrá í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Andrjes Guðmundsson formaður Lungnasamtakanna kom til okkar.

eru sauðfjárbændur landsins gera allt klárt fyrir sauðburð sem er hefjast og sumstaðar er hann hafinn. Við tökum stöðuna á sauðfjárbændum og stöðu þeirra í leiðinni. Við hringdum í formanninn Eyjólf Ingvi Bjarnason.

Í 57. Grein umferðarlaga segir : “Stjórnanda ökutækis er við akstur óheimilt nota farsíma, snjalltæki eða önnur raftæki sem truflað geta aksturinn, án handfrjáls búnaðar. Í 3. gr. eru snjalltæki skilgreind með þessum hætti: Hvert það tæki, með eða án farsímavirkni eða nettengingar, sem m.a. er hægt nota til samskipta, skeytasendinga, leikja og/eða leiðsagnar” Hvernig gengur okkur framfylgja þessum lögum? Gunnar Geir Gunnarsson er deildarstjóri öryggis og fræðsludeildar Samgöngustofu hann kom til okkar.

Við ætlum enda þáttinn á því heyra af Jazzþorpinu í Garðabæ en þorpið er festa sig í sessi sem ein af skemmtilegri bæjarhátíðum landsins þar sem Jazz og Góði Hirðirnn vinna saman góðu málefni. Ómar Guðjónsson heldur utan um herlegheitin og hann kom til okkar.

Birt

27. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,