Síðdegisútvarpið

Artemis leiðangurinn, kólnun á fasteignamarkaði og Fundið.is

Sögulegum Artemis-leiðangri í kringum tunglið er lokið og geimfararnir á heimleið. Þau fóru lengra út í geim en nokkur manneskja áður og skoðuðu og mynduðu fjarhliðina á tunglinu. Sævar Helgi Bragason kom til okkar.

Mikið hefur hægst um á fasteignamarkaðnum ef marka nýjustu tölur um sölur í marsmánuði á milli ára. Við ræddum þessar nýju tölur við Pál Heiðar Pálsson, fasteignasala hjá Pálsson fasteignasölu. Við spurðum líka út í nýjustu tækni í fagsteignaauglýsingum en er gervigreindin farin mubla upp húsnæðið á myndum.

Dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2026 er komin út. Hátíðin fer fram dagana 30. maí til 14.júní en dagskráin er þétt og því ekki seinna vænna skoða hvað verður í boði. Lára Sóley Jóhannsdóttir er listrænn stjórnandi hátíðarinnar.

Fundid.is er íslensk heimasíða þar sem fólk getur skráð hluti sem þau finna eða hluti sem þau hafa týnt. Síðan er gerð af Victor Valenzuela. Við spjölluðum við Salóme Mist, konu Victors sem sagði okkur frá þessari óhagnaðadrifnu hugmynd.

Thelma Aðalsteinsdóttir endaði í sjötta sæti á heimsbikarmótinu í fimleikum í Egyptalandi í gær. Myndbandi af gólfæfingu hennar hefur verið dreift víða á samfélagsmiðlum og segir Alþjóðafimleikasambandið gólfæfingin hennar “must see” eða skylduáhorf. Þau lýsa æfingunni sem frumlegri, skapandi og einstakri. Við heyrðum í Thelmu sem er stödd í Kaíró.

Eftir hámorfið um páskana sem eflaust mörg lágu í kom til okkar Ragnar Eyþórsson, sjónvarpsframleiðandi, eins og annan hvern þriðjudag, til benda okkur á hvað áhugavert í sjónvarpinu til þess hámhorfa.

Birt

7. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,