Síðdegisútvarpið

ESB vaktin, Háskólakona ársins og óveður og ófærð

Allt útlit er fyrir æsispennandi kosningar í Danmörku á morgun. Moeraterne, miðjuflokkur Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra, verður líklega í lykilstöðu sagði í fréttum RÚV í gær. Ljóst virðist vera samsteypustjórn Mette Frederiksen forsætiráðherra á litla möguleika á halda völdum. Hallgrímur Indriðason fréttamaður er staddur í Kaupmannahöfn til fylgjast með kosningunum við heyrðum í honum.

Reglulega berast fréttir af vasaþjófnuðum og hefur fólk sem lendir í því oft tapað háum fjárhæðum þegar kortin þeirra eru notuð. Komið hefur fram í fréttum fylgst með þegar viðkomandi stimplar inn leyninúmerið og síðan er símanum eða veskinu stolið. Þá rifjum við upp hvað við þurfum hafa í huga enda er góð vísa aldrei of oft kveðin. Brynja María Ólafsdóttir, sérfræðingur í regluvörslu hjá Landsbankanum fór yfir það helsta sem ber varast með okkur.

ESB Vaktin er óháð, gagnadrifið upplýsingaverkefni sem fylgist með umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður Íslands við Evrópusambandið þann 29. ágúst í sumar Fullyrðingar úr opinberri umræðu eru skráðar í gagnagrunn. Spjallmenni skannar fullyrðingarnar og ber þær saman við staðreyndagögn. Umsjón með verkefninu hefur Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson. Hann sagði okkur betur frá þessu verkefni sínu.

Og við ætlum fylgjast með veðri og færð í dag en gular veðurviðvaranir eru um allt landið. Sverrir Unnsteinsson á vaktstöð Vegagerðarinnar á Ísafirði fór yfir stöðuna með okkur.

Ásta Dís Óladóttir prófessor í Viðskiptafræði var á dögunum valin Háskólakona ársins 2025 fyrir framúrskarandi störf á sviði fræða og atvinnulífs. Ásta Dís hefur meðal annars leitt uppbyggingu MBA-náms, komið á öflugu samstarfi við fyrirtæki og skapað tækifæri fyrir nemendur. Þá hefur hún einnig verið áberandi í rannsóknum og unnið því efla jafnrétti í atvinnulífinu. Ásta Dís kom til okkar í Síðdegisútvarpið.

Plötuútgáfan Geimsteinn var stofnuð 1976 og er því fimmtug um þessar mundir. Það gerir hana elstu starfandi plötuútgáfa á Íslandi. Í tilefni afmælisins ætla synir Rúnars Júlíussonar og Maríu Baldursdóttur, stofnenda Geimsteins, halda röð tónleika Skólavegi 12 þar sem útgáfan hefur alla tíð verið til húsa. Tónleikarnir verða tileinkaðir þeim sem hafa komið við sögu á þeirri hálfu öld sem Geimsteinn hefur starfað og kennir þar ýmissa grasa. Fyrstu tónleikarnir verða tileinkaðir Gylfa Ægis og ætlar Sóli Hólm aðstoða þá bræður, Baldur og Júlíus, við minnast Gylfa. Baldur Guðmundsson var á línunni úr Bítlabænum.

Birt

23. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,