Síðdegisútvarpið

Íslensku jólafólin, Raddbandafélag Reykjavíkur og EM í handbolta

Á glænýrri og uppfærðri heimasíður Skíðasvæðisins í Bláfjöllum stendur : Við fengum ágætis snjó í sumar girðingar í nótt og getum vonandi opnað eitthvað fljótlega. En hvað þýðir fljótlega og hver er staðan ? Einar Bjarnason rekstrarstjóri svaraði því.

Evrópumót karlalandsliða í handbolta hefst 15. Janúar næstkomandi, mótið fer fram í Svíþjóð og Danmörku. Ísland hefur leik í riðlakeppni við Ítalíu 16. Janúar síðan er það Pólland 20. janúar og loks Ungverjaland 22. janúar. Tvö lið komast svo áfram í milliriðil í Malmö. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður kíkti á okkur í dag, skoðar hópinn og mótið framundan.

Þjóðfræðingafeðginin Dagrún Ósk Jónsdóttir og Jón Jónsson kíkja í Síðdegisútvarpið í dag. Þau gefa út bók fyrir jólin um næstum því gleymdar sögur um íslensku jólafólin. Bókin ber yfirskriftina: Gömlu íslensku jólafólin: fróðleikur og ljótar sögur. Þau sögðu okkur kannski nokkrar ljótar jólafólasögur

Og meira um bækur, Síungir karlmenn, er bók sem félagarnir, Sævar Kristinsson og Karl Friðriksson vorum gefa út.

Í bókinni eru 45 hugleiðingar og ráð til lesendur af stað , (sleppa fjarstýringunni) og njóta líðandi stundar.

Sævar og Karl kíktu í kaffi til okkar í dag.

Raddbandafélag Reykjavíkur tekur þátt í Jólaborginni 2025 með þremur pop-up jólatónleikum á götum og torgum miðborgarinnar til koma gestum og vegfarendum í gott jólaskap. Félagið kom til okkar í dag og kom okkur í gott jólaskap

Frumflutt

18. des. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Þórður Helgi Þórðarson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,