
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Áhættumat Almannavarna fyrir Grindavík er ríflega vikugamalt og Grindvíkingar kalla eftir uppfærslu á því á samfélagsmiðum. Segja að það sé úrelt og að opna eigi bæinn fyrir öllum svo hægt sé að taka á móti ferðamönnum t.d. Íbúar hafa t.d. bent á að hertar lokanir og torvelt aðgengi séu ekki í samræmi við raunverulegar aðstæður. Vilhjálmur Árnason þingmaður bjó í Grindavík fyrir hörmungarnar og var á línunni hjá okkur.
Siggi Gunnars tók fyrir okkur í dag viðtal við Jökul Júlíusson úr Kaleo en hljómsveitin mun halda stórtónleika í Vaglaskógi á morgun laugardag ásamt góðum gestum. Búist er við um 7000 manns og uppselt er á tónleikana.
Mærudagar fara nú fram á Húsavík. Þetta er þeirra bæjarhátíð. Guðrún Huld Gunnarsdóttir Framkvæmdastjóri Mærudaga var á línunni hjá okkur
Gosmóða frá tólfta eldgosinu á Reykjanesskaga hefur legið yfir Árneshreppi á ströndum síðustu daga. Við heyrðum í Jóni Guðbirni Guðjónssyni veðurathugunamanni á Litlu-Ávík.
Og í lok þáttar settum við okkur í samband við okkar mann, Felix Bergsson, sem verður í beinni frá Bræðslunni en tónleikahátíðin verður í beinni útsendingu á Rás 2 annað kvöld.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.