Síðdegisútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Íslenskur ævintýramaður,leigubílamarkaðurinn og H dagurinn

Síðdegisútvarpið 26. maí

H dagurinn er í dag.

Við settum okkur í samband við bæjarstjórann í Grundarfirði hana Björgu Ágústsdóttur en það er mikill hugur í bæjarstjórn Grundafjarðarbæjar og íbúum þar því nú er stefnt á að byggja upp glæsilegan miðbæ á staðnum.

Í síðustu viku blossaði eins og svo oft upp umræða um leigubílamarkaðinn á Íslandi þegar Bergþór Ólafsson þingmaður Miðflokksins sagði frá því hvernig erlendur leigubílstjóri á Keflavíkurflugvelli ofrukkaði hann fyrir þjónustu þegar Bergþór þóttist vera erlendur ferðamaður. Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Hopp Reykjavík sagði í Morgunblaðinu í dag að umræðan um leigubílamarkaðinn sé bæði einhliða og sorgleg. Með nýjum lögum um leigubifreiðaakstur sem tekin voru upp fyrir tveimur árum gat Hopp farið að bjóða upp á leigubílaakstur. Sæunn kom til okkar.

Við tókum á móti ævintýramanninum Birni Páli Pálssyni sem fyrir nokkrum árum stofnaði ævintýraferðaskrifstofuna Crazy Puffin Adventures. Björn sagði okkur frá þessu áhugaverða fyrirtæki en einnig lífinu á Sri Lanka þar sem hann byggði sér nýverið hús.

Sigga Beinteins er bæjarlistamaður Kópavogs. Sigga kom til okkar í Síðdegisútvarpið.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,