Síðdegisútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Væb bræður, skortur á eftirliti í húsbyggingum og sund í New York

Síðdegisútvarpið 14. maí

Við byrjuðum Síðdegisútvarpið í dag með því að hringja til Basel og heyra Í VÆB bræðrum, þeim Hálfdáni og Matthíasi, sem eru bara rétt að lenda eftir að hafa í lokakeppnina í Eurovision.

Nú hefur verið ákveðið að Hera Björk Þórhallsdóttir verði stigakynnir Íslands í Eurovision á laugardaginn og við heyrðum í henni.

Eins og sagt hefur verið frá í fréttum leggur HMS til að farið verði í róttækar breytingar á eftirliti með byggingaframkvæmdum hér á landi. Morgunblaðið hefur fjallað um þessi mál og meðal annars rætt við Jón Sigurðsson sem er formaður Meistarafélags Húsasmiða sem segir að þessi mál séu búin að vera í algjöru rugli. Við hringdum í hann.

Jörð hefur skolfið fyrir utan Grímsey og í morgun mældist jarðskjálfti upp á 5.0 á richter. Gylfi Gunnarsson er íbúi og sjómaður í Grímsey við hringdum í hann.

Góða veðrið er nýtt til að fræsa og malbika götur og vegi. Aldrei er of varlega farið og Vegagerðin biðlar til fólks að fara með gát nálgæt framkvæmdarsvæði. Sævar Helgi Lárusson er öryggisstjóri Vegagerðarinnar við heyrðum í honum.

Birgir Blöndahl Arngrímsson er verkefnastjóri hjá Colas Ísland en þeir eru að fræsa og malbika á Reykjanesbrautinni. Við heyrðum í honum

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,