
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Janúarráðstefna Festu fór fram í Hörpu í dag. Yfirskrift ráðstefnunnar er, Straumar sjálfbærni, þar sem sjónum er beint að sjálfbærniáhættum í virðiskeðju fyrirtækja. Um er að ræða stærstu sjálfbærniráðstefnu á Íslandi sem haldin hefur verið árlega frá árinu 2017. Okkur lék forvitni á að vita hverjir sóttu ráðstefnuna í dag en Ísabella Ósk Másdóttir hjá Festu kom til okkar og við spurðum hana út í það helsta sem farið var yfir. Með henni mætti til okkar Arent Orri J. Claessen forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands, til að segja frá niðurstöðum rannsóknar Deloitte um viðhorf ungs fólks á sjálfbærni.
Á sunnudaginn kemur ætlar Mjölnir standa fyrir minningarmóti um Sigurð Jóhann Rui Helgason sem lést árið 2021 - aðeins 18 ára gamall. Sigurður Jóhann kenndi í Mjölni og til okkar fengum við til að segja frá Sigurði Jóhanni og mótinu Gunnar Nelson bardagakappa og Helga Jóhannesson lögmann, föður Sigurðar Jóhanns.
Ungir umhverfissinnar standa fyrir útgáfuhófi bókarinnar “ Ungar raddir fyrir umhverfið” á morgun laugardag. Ísadóra Ísfeld Finnsdóttir og Ragnhildur Katla Jónsdóttir komu til okkar.
Við tókum stöðuna á Páli Óskari sem að lenti í slysi á dögunum og þríkjálkabrotnaði
Gísli Marteinn söng Hossa Hossa í beinni og sagði okkur frá Morgunkaffinu.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.