
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Ásta Sól Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar segir félaginu þröngur stakkur sniðinn fjárhagslega og í gær var boðað til félagsfundar sem stóð langt fram eftir kvöldi. Við ræddum stöðuna við Ástu Sól sem kallar eftir frekara samstarfi við stjórnvöld.
Þingflokkur Samfylkingar hefur gert kröfu um að fá úthlutað stærsta þingflokksherberginu í Alþingishúsinu í krafti stærðar sinnar, en svo vill til að það er þingflokksherbergi Sjálfstæðisflokks, við þetta eru Sjálfstæðismenn ekki sáttir og á línunni hjá okkur var Hildur Sverrisdóttir þingflokksformaður flokksins.
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir og Gísli Einarsson koma til okkar á eftir en þau eru landsmönnum að góðu kunn. Gísli verið í Landanum í árafjöld og Sigurlaug er með þættina Segðu mér á Rás 1. Nú er þetta ofurpar að byrja saman með þætti hér á RÚV um mat og matarmenningu Íslendinga allt frá landnámi til dagsins í dag. Gísli og Silla kíktu í kaffi til okkar.
Á morgun verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu verk sem heitir Árið án sumars en þetta er þriðji partur af hamfaraþríleik Marmarabarna. Árið án sumars er rómantísk hrollvekja um vináttu og veður. Kristinn Guðmundsson leikari kom til okkar og sagði okkur betur frá.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.