Sjö manna hópur vísindamanna var við árlegar rannsóknir í Surtsey í vikunni, á vegum Náttúrufræðistofnunar. Linda Blöndal fréttamaður tók viðtal við Olgu Kolbrúnu Vilmundardóttur, landfræðing og leiðangursstjóra vísindamannanna. Hún sagði frá því hverju rannsakendur komust að; til dæmis hafa orðið breytingar á plöntulífi og eyjan sjálf tekur breytingum í áranna rás.
Við ræddum í síðustu viku við Guðberg Reynisson sem fer fyrir fjórtán manna hópi sem lagði af stað á buggy bílum og fjórhjólum í ferð um Ísland þar sem markmiðið var að sækja syðsta, nyrsta, austasta og vestasta tanga landsins heim. Mikið hefur gengið á hjá hópnum síðan og upp hafa komið bilanir og fleira. Við tókum stöðuna hjá þessum hressa hópi Suðurnesjafólks og heyrðum í Guðbergi.
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Icedocs fer nú fram á Akranesi í fimmta sinn. Þar eru sýndar heimildamyndir frá hinum ýmsu löndum og fjölbreytt dagskrá fram á sunnudag. Ingibjörg Halldórsdóttir, listrænn stjórnandi hátíðarinnar og einn af stofnendum hennar var á línunni hjá okkur.
Þær Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins í Reykjavík, og Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, varaborgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, komu til okkar og ræddu bágar aðstæður hjólabúa á Sævarhöfða í Reykjavík; fólks sem býr í hjólhýsum og húsbílum. Hópurinn var áður í Laugardal en gert að flytja sig á iðnaðarplan á Sævarhöfða fyrir um ári síðan, sem átti að vera til bráðabirgða. Kolbrún sagði að fólkinu væri gert að búa á sorphaug við núverandi aðstæður. Geirdís Hanna býr þarna sjálf og lýsti takmörkuðu aðgengi að vatni og annarri aðstöðu, öryggisleysi sem íbúar búa við og aðgerðaleysi borgarinnar í málinu.
Þau Ásgeir Kolbeinsson athafnamaður og Margrét Valdimarsdóttir, doktor í afbrotafræði, mættu til okkar og fóru yfir fréttir vikunnar.
Lagalisti:
Helgi Björnsson - Himnasmiðurinn
Bill Withers - Ain't no sunshine
Axel Flóvent - When the Sun Goes Down
Daryl Hall and John Oates - You make my dreams
Zach Bryan - Pink Skies
Björg Pé - Tímabært