ok

Morgunútvarpið

02.07.2024

Sagt var frá því í fréttum í gær að Bandaríska dómsmálaráðuneytið ætli að ákæra Boeing fyrir svikastarfsemi. Heimildir hermi þó að ráðuneytið muni bjóða Boeing að semja um sættir við litla hrifningu ástvina þeirra hundraða sem fórust í tveimur flugslysum fyrir fimm árum. Hallgrímur Indriðason fréttamaður hefur kafað ofan í málefni Boeing og rakti málið fyrir okkur.

Fréttir bárust af því síðustu viku að hundar af ungversku veiðihundakyni séu grunaðir um kattardráp í Laugardalnum. Þá hafa borist fréttir af því í tvígang síðustu daga að hundur hafi tryllst og bitið fólk. Við fengum til okkar Hönnu M. Arnórsdóttur hjá Dýraspítalanum í Garðabæ til að ræða atferli hunda og hvað það er sem getur valdið svona hegðan hjá þeim.

Í nýjasta Bændablaðinu er sagt frá því að eldpiparrækt á Íslandi hafi stóraukist á mjög skömmum tíma. Nokkuð sem hefði varla talist mjög vænlegt til vinnings fyrir ekki svo löngu. Óli Finnsson eldpiparræktandi við í Heiðmörk í Laugarási sagði okkur betur frá því.

Fólki fallast hendur þessa dagana verði það fyrir því óláni að veikjast eða þurfa á læknisaðstoð að halda. Víða er alls ómögulegt að panta tíma hjá heimilislækni og nýlega var síðdegisvaktin lögð af í þeirri mynd sem hún hefur hingað til verið rekin. Hvað segir formaður Félags heimilislækna um málið? Margrét Ólafía Tómasdóttir var á línunni.

Ísland varð í fyrsta skipti í sögunni Norðurlandameistari undir 20 ára karla eftir sigur gegn Finnlandi á dögunum og í gær hófst Norðurlandamót U18 drengja og stúlkna. Hannes Jónsson, framkvæmdastjóri Körfuknattleikssambands Íslands, kom til okkar og ræddi körfubolta framtíðarinnar.

Tónlist:

Flott - Með þér líður mér vel.

Paul Simon- Still Crazy After All These Years.

Bubbi Morthens - Dansaðu.

Seal - Crazy.

Jónfrí og Ólafur Bjarki Bogason - Gott og vel.

Trúbrot - My Friend And I.

Billie Eilish - Birds of a Feather.

Peter Gabriel - Solsbury Hill.

Shaboozey - A Bar Song (Tipsy).

Frumflutt

2. júlí 2024

Aðgengilegt til

2. júlí 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,