Morgunútvarpið

12. sept - Veðmál, Pólland og gervigreind

Við ætlum halda áfram ræða þingið í upphafi þáttar, en í dag á óhefðbundnum nótum. Dóra Júlía Agnarsdóttir, fjölmiðlakona og plötusnúður, kemur til okkar en hún hefur lagst yfir tískuna á Alþingi.

Pólska ríkisstjórnin er ósátt við ákvörðun Þýskalands um taka upp vegabréfaeftirlit við landamæri ríkisins. Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir Þjóðverja í raun vera rjúfa Schengen-sáttmálann með þessu, þar sem fólk getur ferðast á milli ríkja innan Schengen-svæðisins án vegabréfa. Við ræðum pólska pólitík við Margréti Adamsdóttur fréttamann.

Al­var­leg van­skil ein­stak­linga og fyr­ir­tækja hafa auk­ist veru­lega það sem af er ári á kröf­um öðrum en fast­eignalán­um, miðað við sömu mánuði í fyrra. Sam­kvæmt gögn­um kröfuþjón­ust­unn­ar Mot­us juk­ust al­var­leg van­skil um 20,1% hjá ein­stak­ling­um og 6,5% hjá fyr­ir­tækj­um. Sara Jasonardóttir, verkefnisstjóri fræðslu- og kynningarmála hjá Umboðsmanni skuldara lítur við hjá okkur.

Viðskiptaráð birti í morgun úttekt á umgjörð veðmálastarfsemi hér á landi, en þar kemur meðal annars fram Íslendingar hafi veðjað næst mest allra Evrópuríkja í fyrra, en aðeins Írar vörðu meiri fjármunum í veðmál. Umfang íslenska veðmálamarkaðarins nam 20 milljörðum króna. Við ræðum við Gunnar Úlfarsson, hagfræðing hjá Viðskiptaráð.

Karlmaður í Bandaríkjunum hefur verið ákærður fyrir stórfelld fjársvik sem fólust í því framleiða fjölda laga með hjálp gervigreindar og nýta hana einnig í falsa spilanir á streymisveitum. Við ræðum þetta mál og áskoranir og tækifæri þegar kemur gervigreind í tónlist við Braga Valdimar Skúlason, formann Félags tónskálda og textahöfunda.

Alþýðusamband Íslands, BSRB og Öryrkjabandalag Íslands vilja ræða jafnrétti í heilbrigðisþjónustu og læra af reynslu Svía. Hvernig hafa Svíar hagað þessum málum og hver er þeirra reynsla sem við gætum lært af? Steinunn Bragadóttir hagfræðingur hjá ASÍ lítur við hjá okkur í lok þáttar.

Frumflutt

12. sept. 2024

Aðgengilegt til

12. sept. 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Þættir

,