Morgunútvarpið

Þýðingarskylda aðeins fyrir innlenda aðila, lækkun verðbólgu, umhverfisvænna malbik og fréttir vikunnar.

Í samráðsgátt stjórnvalda liggur til umsagnar frumvarp til laga um menningarframlag streymisveitna til eflingar íslenskri menningu og íslenskri tungu. Lilja Dögg Al­freðsdótt­ir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur sagt frum­varpið lagt fram til hjálpa til við fjár­mögn­un skap­andi greina á Íslandi. Hólmgeir Baldursson, sem rekur streymisstöðina Skjá einn, vekur athygli á því í greinum sem hann hefur skrifað og birt opinberlega ekki á skylda þessa erlendu aðila til texta sitt efni á íslensku. Þó er það skylda fyrir innlenda aðila. Hólmgeir kom í kaffispjall.

Í gær tilkynnti Hagstofan ársverðbólga hérlendis hefði lækkað á milli mánaða og væri komin undir 6%. Verðbólga mæl­ist 5,8% og hef­ur ekki mælst lægri síðan í janú­ar 2022. Til greina stöðuna með okkur kom Una Jónsdóttir, forstöðukona hagdeildar Landsbankans.

Í dag, föstudag, ætlar Colas Ísland ehf., sem sérhæfir sig í framleiðslu á malbiki og tengdum vörum leggja út malbik sem er hluti af tilraunarverkefni með umhverfisvænna malbik. Verkefnið er unnið í samvinnu við Vegagerðina en eins og flest vita þá er hefðbundið malbik frekar óumhverfisvænt. Til segja okkur frá helstu nýjungum í þessum geira hvað viðkemur til mynda minna kolefnisspori mætti Björk Úlfarsdóttir sem er umhverfis-, gæða- og nýsköpunarstjóri hjá Colas.

Og í lok þáttar fórum við yfir fréttir vikunnar með góðum gestum eins og endranær á föstudögum. Gestir í dag voru fyrrum útvarpsfólkið Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir, Svansí og Haraldur Daði Ragnarsson hjá Manhattan marketing.

Lagalisti:

Mannakorn - Gamli Skólinn

Salka Sól Eyfeld - Sólin og ég

R.E.M. - Losing My Religion

Ásdís - Flashback

Mike Posner - I Took A Pill in Ibiza

Árnason & GDRN - Sagt er

Emmsjé Gauti - Malbik

Chris Isaak - Wicked Game

Blue Öyster Cult - Don't fear the reaper

Frumflutt

28. júní 2024

Aðgengilegt til

28. júní 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Þættir

,