Morgunútvarpið

Landsmót skáta, íslandsmótið í golfi, Helga Vala um rannsókn á múturgreiðslum og ósátt bifhjólafólk

fer fram Landsmót skáta við Úlfljótsvatn og eru þar saman komin ungmenni víðs vegar úr heiminum. Skátarnir eru alþjóðleg æskulýðshreyfing sem vinnur valdeflingu ungmenna í þeim tilgangi virkja þau til jákvæðra áhrifa í sínu samfélagi og til þátttöku í bæta þann heim sem við búum í. Við heyrðum í mótstýrunni, Kolbrúnu Ósk Pétursdóttur, sem sagði okkur hvernig hafi gengið en Landsmótinu lýkur á föstudaginn.

Íslandsmótið í golfi 2024 fer fram á Hólmsvelli í Leiru en herlegheitin byrja á morgun, fimmtudag. Íslandsmótið á sér langa sögu á Hólmsvelli í Leiru og er þetta í 21. sinn sem keppt er um Íslandsmeistaratitla hjá Golfklúbbi Suðurnesja, en klúbburinn fagnar 60 ára afmæli á þessu ári. Til okkar komu þau Hulda Bjarnadóttir forseti Golfsambandsins og Sveinn Björnsson formaður Golfklúbbs Suðurnesja. Þau sögðu okkur betur frá þessum hápunkti golfara á hverju sumri, Íslandsmótinu.

Ríkissaksóknari hefur gert lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu hefja aftur rannsókn á meintum mútugreiðslum þeirra Semu Erlu Serdaroglu og Maríu Lilju Ingveldar Þrastardóttur Kemp. Einar S. Hálfdánarson hæstaréttarlögmaður kærði konurnar fyrir fjársöfnun Solaris, sem stofnað var til í þeim tilgangi koma flóttafólki frá Palestínu, sem þegar hafði fengið dvalarleyfi á Íslandi, hingað til lands. Lögreglustjóri taldi ekki grundvöll fyrir því halda rannsókn málsins áfram og felldi hana niður, en hefur ríkissaksóknari sem sagt gert lögreglustjóra taka rannrókn upp nýju. Helga Vala Helgadóttir, lögmaður Semu Erlu, var á línunni hjá okkur til ræða þetta.

Vantrú og mikil reiði braust út hjá bifhjólafólki þegar tilkynnt var héraðssak­sókn­ari hafi fellt niður mál í tengsl­um við bana­slys á Kjal­ar­nesi sum­arið 2020. Hjón á bif­hjóli fór­ust í slys­inu sem átti sér stað á ný­lögðu og hálu mal­biki sem stóðst ekki kröf­ur Vega­gerðar­inn­ar. Enginn mun því bera ábyrgð endi málið svona. Þau Atli Már Jóhannsson og Sólveig Stefánsdóttir bifhjólafólk komu til okkar ásamt Ólafi Guðmundssyni umferðasérfræðingi og fóru yfir málið með okkur.

Lagalisti:

Hafdís Huld - Tomoko

Sálin hans Jóns míns - Englar

Myles Smith - Stargazing [Moonlight Version]

Sabrina Carpenter - Espresso

Coldplay - Feelslikeimfallinginlove

Emmsjé Gauti, Björn Jörundur Friðbjörnsson og Fjallabræður - Fullkominn dagur til kveikja í sér

Moby - Porcelain

Beach Weather - Sex, Drugs, Etc.

Bob Marley & The Wailers - Could You Be Loved

Justin Timberlake - Selfish

WHAM! - The edge of heaven

Frumflutt

17. júlí 2024

Aðgengilegt til

17. júlí 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Þættir

,