Nettó og Bónus virðast eiga í jólabókaverðstríði þessi jólin samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ. Benjamin Julian frá verðlagseftirliti ASÍ segir okkur frá verðstríðinu og hvernig verðlag er að þróast á þessum helstu vörum fyrir jólin.
Stekkjastaur kom til byggða í nótt. Eflaust hafa mörg börn átt örlítið erfitt með svefn í gærkvöldi og jafnvel inn í nóttina. Jólin geta valdið talsverðu álagi á taugakerfi barnanna okkar. Við ræðum hvað við getum gert til að gera jólin sem ánægjulegust og minnst kvíðavaldandi við Lindu Björk Oddsdóttur sálfræðing á Sálstofunni.
Við höldum áfram að ræða varnar- og öryggismál en í gær ræddum við við skrifstofustjóra varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins um uppbyggingu á varnarsvæðinu. Í dag ræðum við við Guttorm Þorsteinsson, formann Samtaka hernaðarandstæðinga.
Adriana Karólína Pétursdóttir, formaður Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi, verður gestur okkar eftir átta fréttir þegar við ræðum jólapartý fyrirtækja en breska dagblaðið The i Paper fjallaði á dögunum um það að yngra starfsfólk hafi nú minni áhuga á slíkum veislum og benti á rannsóknir sem sýna fram á að einungis einn af hverjum fjórum í Bretlandi vilji að áfengi sé haft við hönd á viðburðum sem tengjast vinnunni.
Andrea Guðmundsdóttir, aðjúnkt og fagstjóri miðlunar og almannatengsla við Háskólann á Bifröst, ræðir við okkur um manneskju ársins hjá bandaríska tímaritinu Time sem greinir frá vali sínu í dag en birti í fyrradag lista yfir þá sem koma til greina í ár.
Terry Gunnell, þjóðfræðingur, ræðir við okkur um jólahefðir í lok þáttar.