ok

Morgunútvarpið

10. okt - Tónleikastaðir, opinberir starfsmenn og Milton

Við ætlum að halda áfram að ræða húsnæðisuppbyggingu í upphafi þáttar, í þetta skiptið við Örnu Mathiesen, arkitekt, sem tekur í kvöld þátt í fyrirlestraröð þar sem fólk vill kanna hagkvæman húsnæðiskost sem býður upp á meiri nánd en vaninn er hér á landi.

Matarræði og mýtur - Vilborg Kolbrún Vilmundardóttir, aðjúnkt við Matvæla- og næringarfræðideild og doktorsnemi við HÍ

Breski fjölmiðillinn The Guardian fjallaði í gær um fækkun tónlistarstaða í Reykjavík og í umfjölluninni er haldið fram að fjölgun ferðamanna og gistirýma hafi hreinlega gleypt tónleikastaði í þessari borg sem áður bjó þannig um hnútana að listafólk blómstraði. Við ætlum að ræða þessa úttekt við Arnar Eggert Thoroddsen, aðjúnkt og tónlistarsérfræðing.

Fimm þúsund manns skráðir í fæðingarorlof voru ranglega taldir sem ríkisstarfsmenn í opinberum gögnum Hagstofunnar. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra vakti athygli á þessu í gær og sagði villur sem þessar í opinberum gögnum vera hið versta mál, ekki síst þegar þær verða grundvöllur umræðu um útþenslu hins opinbera. Við ætlum að ræða þessi mál við Arnald Sölva Kristjánsson, lektor við HÍ og sérfræðing í vinnumarkaðshagfræði.

Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur ræðir Milton við okkur. Milton var í byrjun dags skilgreindur sem fimmta stigs fellibylur en hefur nú verið lækkaður niður í fyrsta stig.

Við gerum upp fyrstu opinberu heimsókn forsetans sem lauk í gær með Höllu Helgadóttur framkvæmdastjóra Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs sem rýnir í klæðnað Höllu.

Frumflutt

10. okt. 2024

Aðgengilegt til

10. okt. 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,