Morgunútvarpið

24. sept - Mars, ungt fólk og traust til ráðherra

Gró Einarsdóttir, doktor í félagssálfræði og sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, verður á línunni hjá okkur í upphafi þáttar þegar við ætlum ræða það sem veitir okkur ánægju.

Elon Musk, stofnandi geimferðafyrirtækisins SpaceX, segir fyrirtækið hafa áform um senda fimm ómönnuð för til reikistjörnunnar Mars innan tveggja ára, og ef vel gangi er ekki útilokað senda menn til Mars innan fjögurra ára. Við ætlum ræða þennan möguleika við Sævar Helga Bragason.

Á morgun hefst samnorrænt ungmennaþing í Reykjavík. Þar ungmenni tækifæri til ræða málin sín á milli og eiga orðið þegar kemur því sem skiptir þau mestu máli. Þröstur Flóki Klemensson og Snæ Humadóttir eru í ungmennaráði Reykjavíkur -þau kíkja til okkar ásamt Gísla Ólafssyni, einum af skipuleggjendum U-lync ungmennaráðstefnunnar.

Við fylgdumst með Bakgarðshlaupi Náttúruhlaupa um helgina þar sem Marlena Radziszewska bar sigur úr býtum og lagði 254,6 kílómetra baki. Við ætlum ræða þessi lengstu hlaup, hvort heilbrigt taka þátt í þeim og áhrif á líkama og sál við Elísabetu Margeirsdóttur, ofurhlaupara og næringafræðing.

Til hvaða ráðherra ber þjóðin mest traust? Hefur það breyst mikið á síðustu misserum? Við förum yfir nýjustu könnun Maskínu með Andrési Jónssyni almannatengli.

Guðmundur Jóhannsson, tæknispekúlant Morgunútvarpsins, verður gestur okkar í lok þáttar.

Frumflutt

24. sept. 2024

Aðgengilegt til

24. sept. 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Þættir

,